Fara í efni

Gróður má ekki trufla umferð

Trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Hveragerðisbær hvetur garðeigendur til að klippa tré sín svo þau hvorki hindri vegfarendur, hylji umferðarskilti né dragi úr götulýsingu. Ekki má gleyma að á veturna þarf að vera hægt að ryðja snjó og því þarf að gera ráð fyrir 2,8 metra hæð undir trjágreinar á gangstígum til að snjóruðningstæki komist undir á þeim dögum sem trjágreinar slúta undan snjóþunga. Garðeigendur eru minntir á byggingarreglugerð nr. 112/2010 gr. 7.2.2

Ekki má planta hávöxnum trjátegundum nær lóðarmörkum aðliggjandi lóða en 4,0 m.

Við staðsetningu trjáa á lóð sem ætlað er að vaxi frjáls skal taka tillit til skuggavarps á viðkomandi lóð og nágrannalóðum. Sé trjám eða runnum plantað við lóðarmörk samliggjandi lóða skal hæð þeirra ekki verða meiri en 1,80 m, nema lóðarhafar beggja lóða séu sammála um annað.

Ef lóðarmörk liggja að götu, gangstíg eða opnu svæði má trjágróður ná meiri hæð, enda komi til samþykki veghaldara eða umráðaaðila viðkomandi svæðis.

Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götur, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.

Á heimasíðu Garðabæjar má fá afar góðar upplýsingar um klippingar trjá og fleira er varðar umhirðu gróðurs og garða. http://www.gardabaer.is/?PageID=2564

Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar eða koma ábendingum á framfæri geta haft samband við umhverfisfulltrúa, Höskuld Þorbjarnarson hoskuldur@hveragerdi.is eða í síma 660-3908.


Síðast breytt: 27. júlí 2017
Getum við bætt efni síðunnar?