Fara í efni

FUBAR - danssýning í Hveragerði

Danssýningin FUBAR eftir Siggu Soffíu verður sýnd á næstu helgi laugardaginn 16.september í Hveragerði nánar tiltekið leikhúsinu í Skyrgerðinni.

Danssýningin sem er einnig með töluðum texta, söng og lifandi hljóðfæraleik Jónasar Sen tónistamanns heldur áfram för sinni um landið en hún hlaut frábærar viðtökur víða um land síðasta vetur.

"Sigríður er ofsafenginn dansari sem hefur ekki bara impónerandi ægivald yfir líkama sínum heldur ekki síður magnaða tilfinningu fyrir uppbyggingu, skáldskap, ljóðrænu, tónlist og drama. Hún er dágóð leikkona, frábær sagnamaður og með fallega söngrödd, hefur til að bera kynþokka rokkstjörnu og tímasetningar góðs uppistandara. Tónsmíðar Jónasar eru til mikillar fyrirmyndar, þjóna sínu hlutverki vel, þótt þær myndu kannski ekki njóta sín jafn vel án umgjarðarinnar – grunar mig – en umgjörðin ekki heldur án þeirra, þetta eru allt púsl í sömu heildinni og allt passar fallega saman. Þá er fallegt að sjá hann dansa með Sigríði, það undirstrikar þema sýningarinnar, þennan berskjaldaða en tígulega vandræðaleik." Eiríkur Örn, starafugl.is

FUBAR hlaut 2 tilnefningar til íslensku leiklistarverðlaunanna í fyrra Jónas Sen fyrir tónlist árisns og Sigga Soffía Dansari ársins.

Sýningin hefst kl 20:00 og er 75 mín á lengd, miðaverð 2500kr

Hlökkum til að sjá ykkur!

Verkið er framleitt af Níelsdætrum í samvinnu við Menningarsjóð VÍB og Reykjavíkurborg.


Síðast breytt: 11. september 2017
Getum við bætt efni síðunnar?