Fara í efni

Frí á launum 4 vikum fyrir fæðingu

Bæjarráð hefur samþykkt að barnshafandi starfsmenn Hveragerðisbæjar eigi möguleika á launuðu fríi einum mánuði fyrir settan fæðingardag. Skal fæðingardagur staðfestur með læknisvottorði. Starfsmanni ber að tilkynna yfirmanni eins fljótt og kostur er hvort hann hyggst nýta sér þennan rétt.

Í minnisblaði bæjarstjóra með tillögunni kom fram að Hveragerðisbær er stærsti vinnuveitandi bæjarfélagsins með um 200 starfsmenn.

Starfsmenn bæjarins vinna afar mikilvæg og krefjandi störf sem flest hver felast í líkamlegri áreynslu og/eða andlegri.

Það er mikilvægt að koma til móts við starfsmenn okkar á stóru stundunum í lífi þeirra og létta undir þar sem það er hægt. Það má færa sannfærandi rök fyrir því að jafn stórum vinnuveitenda og Hveragerðisbæ beri að leggja sín lóð á vogaskálarnar í þeim tilgangi að auðvelda starfsmönnum að samræma fjölskyldulíf og atvinnuþátttöku.

Tillagan var samþykkt samhljóða og tekur fyrirkomulagið þegar gildi.


Síðast breytt: 17. mars 2017
Getum við bætt efni síðunnar?