Fara í efni

Framkvæmdir í Blómabænum aldrei meiri

Útsýni af Reykjafjalli yfir Hveragerði.  Myndina tók Örlygur Atli.
Útsýni af Reykjafjalli yfir Hveragerði. Myndina tók Örlygur Atli.

Framkvæmdir í Hveragerði hafa aldrei verið jafn miklar og á árinu 2020.  Fjöldi  fjölbreyttra íbúða er í byggingu og aðrar í farvatninu og íbúum fjölgar stöðugt.   Einnig er fjölmargt í gangi á sviði ferðaþjónustu og atvinnulífs en nú er unnið ötullega að því að búa í haginn fyrir þann tíma þegar ferðamenn mæta aftur til Íslands.  

Í myndbandinu sem hér má sjá er farið yfir helstu framkvæmdir sem nú eru í gangi í bæjarfélaginu.  Aldrei er þó hægt að gera öllu skil og beðist er velvirðingar á því sem gleymdist eða ekki er með þarna.  Hvet ykkur til að skoða myndbandið og dreifa því sem víðast því við viljum gjarnan að sem flestir sjái hversu  gott er að búa í Blómabænum. 

Með bestu óskum um gleðilegt nýár með kærum þökkum fyrir góðar stundir á liðnum árum. 

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri. 

Tengill á myndband um framkvæmdir 2020 


Síðast breytt: 30. desember 2020
Getum við bætt efni síðunnar?