Fara í efni

Fræðsluhádegi fyrir forvitna frumkvöðla - gerð styrkumsókna

Fræðsluhádegi landshlutasamtakanna
- Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar
 
Landshlutasamtökin: Austurbrú, SASS, SSNE, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofa standa að mánaðarlegum fræðsluerindum fyrsta þriðjudag í mánuði.
Fjölbreytt fræðsla í boði fyrir frumkvöðla og önnur áhugasöm um nýsköpunarsenuna. Fræðsluhádegin eru öllum opin og að kostnaðarlausu!
 
Erindin verða haldin á Teams og hefjast þau kl.12. Ráðgert að hvert erindi verði ekki lengra en 45 mínútur. Í kjölfar hvers erindis gefst kostur á að leggja fram spurningar.
 
Takið frá tíma:
7. janúar – Frumkvöðlaferlið
4. febrúar – Umsóknarskrif
4. mars – Gervigreind og styrkumsóknir
1. apríl – Skapandi hugsun
6. maí – Viðskiptaáætlun á mannamáli
3. júní – Stofnun og rekstur smáfyrirtækja//ólík rekstarform
 

Síðast breytt: 30. janúar 2025
Getum við bætt efni síðunnar?