Fara í efni

Fegurstu garðarnir 2019


Viðurkenningar vegna fegurstu garða Hveragerðisbæjar árið 2019 voru afhentar við hátíðlega athöfn í tengslum við bæjarhátíðina Blómstrandi daga um síðastliðna helgi.

Verðlaunahafarnir eru:
Hólmfríður Skaptadóttir og Gísli Gíslason, Dynskógum 4 Sigurlín Guðjónsdóttir, Heiðmörk 28H
Guðlaug B. Björnsdóttir, Laufskógum 23

Eins og venjan er voru verðlaunagarðarnir opnir fyrir gesti á Blómstrandi dögum en fjöldi fólks notaði tækifæri til að skoða þessa fallegu garða og ekki síður til að fá góðar hugmyndir fyrir sína eigin garða.

Á myndinni má sjá verðlaunahafana ásamt Aldísi Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra, Bryndísi Eir Þorsteinsdóttur, formanni umhverfisnefndar og Höskuldi Þorbjarnarsyni, umhverfisfulltrúa.

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri


Síðast breytt: 19. ágúst 2019
Getum við bætt efni síðunnar?