Fara í efni

Evrópsk samgönguvika dagana 16. - 22. september 2021

Frá árinu 2002 hafa borgir og bæir á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu um að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Yfirskrift átaksins er Evrópsk Samgönguvika og er hún haldin 16. – 22. september ár hvert. Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. Frekari upplýsingar um Evrópska samgönguviku á Íslandi má finna á Facebook-síðu vikunnar https://www.facebook.com/samgonguvika

Hægt er að lesa nánar um átakið á www.mobilityweek.eu

Flest sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið þátt í samgönguvika undanfarin ár en einnig nokkur sveitarfélög á landsbyggðinni.

Í flestum þéttbýlum á landsbyggðinni eru fjarlægðir mjög stuttar og ætti að vera auðvelt og þægilegt að ganga og hjóla milli áfangastaða innan þéttbýla. Það er til mikils að vinna því hver km sem er gengin eða hjólaður mengar ekki og bætir heilsuna. Á 1 stuttum vegalengdum í köldu starti eyða bílar líka mestu eldsneyti og menga mest. Ábyrgð okkar sem borgara og stjórnmálamanna er mikil að draga úr mengun og losun koltvísýrings og stuðla að betri lýðheilsu með almennri hreyfingu.

 Við viljum því  hvetja bæjarbúa til að leggja bílnum og ganga, hjóla eða nota vistvæn farartæki sem mest. Í bænum eru fallegar gönguleiðir sem henta vel öllum aldurhópum og er tilvalið að fjölskyldan fari saman í gönguferð, sund eða hjólatúr daglega þessa viku.

 

 

 

 

 


Síðast breytt: 16. september 2021
Getum við bætt efni síðunnar?