Eva Hrönn nýr aðstoðarleikskólastjóri
04.06
Frétt
Eva Hrönn Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Óskaland.
Hún hefur góða reynslu og þekkingu af stjórnun í leikskóla þar sem hún hefur starfað sem aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Álfheima í Árborg sl. átta ár.
Eva er leikskólakennari að mennt og hefur einnig lokið M.Ed gráðu í stjórnun menntastofnanna.
Við bjóðum hana innilega velkomna til starfa við leikskólann Óskaland.
Síðast breytt: 4. júní 2024
Getum við bætt efni síðunnar?