Fara í efni

Tilkynning vegna neysluvatns í Hveragerði

Eins og komið hefur fram hafa borist ábendingar um lykt og bragð af neysluvatninu í Hveragerði. Unnið er eftir viðbragðsáætlun bæjarins varðandi vatnsveitu og hún virkjuð eftir því sem tilefni er til.

Heilbrigðiseftirlitið hefur tekið fjölmörg sýni á svæðinu og eins og staðan er í dag, miðað við fyrstu upplýsingar frá heilbrigðiseftirlitinu, er að ekki mælast kólí/ecolí í neysluvatninu. Á þessum stigum hefur eftirlitið ekkert í hendi um að vatnið sé óneysluhæft út frá gerlafræðilegum viðmiðum. Beðið er eftir niðurstöðum/ fyrstu vísbendingum úr öðrum sýnum. Þær niðurstöður verða birtar hér á heimasíðunni.

Lykt af vatninu er staðfest af heilbrigðiseftirlitinu. Þá mælist lækkað ph gildi í vatninu, innan marka, en það gefur ríkt tilefni til að rannsaka málið þar til orsökin er ljós. Það er í algjörum forgangi.

Unnið er öllum höndum að málinu með starfsfólki bæjarins og fjölmörgum fagaðilum að greina betur orsökina og málið upplýst eftir því sem framvindan skýrist. Við munum greina frá niðurstöðum um og leið og þær berast hér á vefnum.

Eins og staðan er í dag benda fyrstu frumniðurstöður ekki til að vatnið sé óhæft til neyslu í Hveragerði.

Pétur G. Markan, bæjarstjóri


Síðast breytt: 27. mars 2025
Getum við bætt efni síðunnar?