Einstök rekstrarafkoma Hveragerðisbæjar fyrir árið 2024
Ársreikningur Hveragerðisbæjar var tekin til fyrri umræðu bæjarstjórnar fimmtudaginn 10. apríl. Niðurstaðan er einstaklega góð og skilar einstakri rekstrarafkomu bæjarins.
Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 225 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 175 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 1.402 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 1.302 millj. kr
Hveragerðisbær stendur í sögulegri uppbyggingu innviða. Íþróttamannvirki, þriðji áfangi við grunnskólann, viðbygging við leikskóla, gatnagerð og skolphreinsistöð eru allt verkefni á lokametrum framkvæmda eða í framkvæmd. Þessi mjög svo góða rekstarafkoma styrkir þann fjárhagslega grundvöll sem þarf að vera til staðar í þeirri mikilvægu innviða og þjónustu uppbyggingu – uppbygging til að tryggja einstök gæði í þjónustu og velferð við íbúa bæjarins. Afkoma ársins 2024 er gleðiefni fyrir alla Hvergerðinga.