Deildarstjóra, leikskólakennara og leiðbeinendur óskast til starfa við leikskólann Óskaland
Deildarstjóra, leikskólakennara og leiðbeinendur óskast til starfa við leikskólann Óskaland!
Leikskólinn Óskaland er 6 deilda leikskóli með börn frá 12 mánaða til 6 ára og dvelja 106 börn á aldurshreinum deildum að mestu.
Í Óskalandi er starfað samkvæmt lögum um leikskóla og Aðalnámskrá leikskóla. Aðaláherslur eru á vináttu, lífsleikni, velllíðan, málrækt, sköpun, útiveru og nám og kennslu í gegnum leik og hreyfingu. Til stuðnings námi barna er unnið með m.a. Vináttu verkefni Barnaheilla, Lubbi finnur málbein og Hugarfrelsi, Numicon og fl.
Deildarstjóra vantar á yngri barna deild og leikskólakennara/leiðbeinanda á fleiri deildir nú þegar eða eftir samkomulagi.
Leikskólinn fer stækkandi og fjölgar um þrjár deildir síðla á þessu ári eða í byrjun ársins 2024.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
- Jákvæðni í samskiptum og ábyrgur einstaklingur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Laun greiðast samkvæmt kjarasamning viðkomandi stéttarfélags og störfin henta öllum kynjum.
Fáist ekki menntaður leikskólakennari verður ráðið í stöðu leiðbeinanda.
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri
Sími: 8656297/4834139
oskaland@hveragerdi.is
Umsóknarfrestur er til 31.ágúst 2023 og með umsókn skal fylgja ferilskrá eða upplýsingar um menntun og fyrri störf og skal skilað í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar www.hveragerdi.is eða til leikskólastjóra með tölvupósti: gunnvor@hveragerdi.is