Fara í efni

Breytingar á póstþjónustu í Hveragerði

Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins
Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins

Á næstu mánuðum hyggst Pósturinn gera breytingar á póstþjónustu, m.a. í Hveragerði. Pósturinn hefur sagt upp samningi við Upplýsingamiðstöðina og þar af leiðandi verður póstafgreiðslunni í Upplýsingamiðstöðinni lokað en þess í stað verður lögð áhersla á að veita póstþjónustu með öðrum hætti.

Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins, segir að lögð sé áhersla á að þróa þjónustuna í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda. „Dregið hefur úr eftirspurn eftir afgreiðsluþjónustu pósthúsa. Þar af leiðandi er lagt upp úr að þróa annars konar lausnir. Okkar ánægðustu viðskiptavinir eru þeir sem nota póstbox auk þess sem í dag er hægt að póstleggja pakka í póstbox. Flest póstboxin eru aðgengileg allan sólarhringinn og eru einföld í notkun.“ segir Þórhildur.

Stafræn umbreyting kallar á nýjar nálganir í þjónustu og við verðum að bregðast við því. Um leið ber okkur beinlínis skylda til að leita hagkvæmra leiða í rekstrinum og því eru breytingar sem þessar óhjákvæmilegar. Pósturinn hefur lagt höfuðáherslu á að endurskipuleggja þjónustu fyrirtækisins með viðskiptavini í forgrunni. Hluti af þeirri vegferð eru fleiri sjálfvirkar afhendingarleiðir í aukinni nálægð við viðskiptavini. „Markmið okkar er ávallt að fjölga afhendingarstöðum en það er okkur mikið kappsmál að bæta við póstboxum í helstu þéttbýliskjarna á landsbyggðinni. Það skiptir máli að bjóða upp á þétt dreifinet móttöku og afhendingastaða til að vera sem næst viðskiptavinum okkar, segir Þórhildur.

Pósturinn býður upp á fjölbreyttar þjónustuleiðir í takt við nýjar áherslur. „Við erum óendanlega þakklát fyrir það góða starf sem hefur verið innt af hendi á samstarfspósthúsinu og þrátt fyrir þessar breytingar þá er Pósturinn ekki að fara neitt. Við ætlum okkur að sjálfsögðu að halda áfram að veita góða þjónustu. Við erum með póstbox í Hveragerði við Bónus sem hefur verið mjög vinsælt og við hvetjum alla til þess að nýta sér það. Auk póstboxsins mun bréfberi halda áfram að sjá um dreifingu. Þeir sem það kjósa geta sem fyrr óskað eftir heimsendingu, póstbílinn verður á ferðinni og viðskiptavinir geta haft samband við bílstjórann í gegnum síma. Okkar besta fólk er klárt á útkeyrsluvaktinni til að afhenda pakka heim að dyrum 5 daga vikunnar. Fyrir þá sem eru á ferðinni, og vilja nýta sér aðra afgreiðslustaði má sjá þá á vef Póstsins.

Á posturinn.is má finna ítarefni og upplýsingar um fjölbreytta þjónustu Póstsins. Auk þess er alltaf velkomið að hafa samband við þjónustuver í síma 580 1000 eða spjallköttinn Njál á posturinn.is. Á næstu vikum munu íbúar á svæðinu fá nánari upplýsingar um hvernig þjónustunni verður hagað í framhaldinu.

Fréttatilkynning frá Póstinum 


Síðast breytt: 28. febrúar 2023
Getum við bætt efni síðunnar?