Fara í efni

Bókun bæjarstjórnar Hveragerðis vegna virkjunaráforma í Ölfusdal.

mynd://Christopher Lund, www.landvernd.is
mynd://Christopher Lund, www.landvernd.is

Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar undrast hálýstar yfirlýsingar í fjölmiðlum í gær um virkjanaáform í Ölfusdal og samstarf Orkuveitu Reykjavíkur,  Sveitarfélagsins Ölfuss og Títans án nokkurs samráðs eða aðkomu Hveragerðisbæjar að því máli.

Eins og fram hefur komið er Ölfusdalur að stærstum hluta í Hveragerði og að minnihluta í Ölfusi. Það er furðulegt að fara af stað með slík áform án þess að Hveragerðisbær eigi aðkomu að málinu því ljóst er að virkjanaframkvæmdir munu hafa mest áhrif á íbúa Hveragerðisbæjar. Í þessu samhengi má nefna þau óþægindi sem íbúar Hveragerðis og nágrennis hafa orðið af borholum á Hellisheiði, með aukinni jarðskjálftavirkni vegna niðurdælingar, loftmengun og hávaðamengun sem berst íbúum þegar borholurnar eru látnar blása.

Í Ölfusdal er að finna fjölbreytta aðstöðu til útvistar og íþrótta, má þar nefna að golfvöll, knattspyrnuvöll, sviflínu og gönguleiðir, þ.m.t. upphaf gönguleiðar inn í Reykjadal sem tugþúsundir ferðamanna fara á hverju ári. Í undirbúningi er frekari uppbygging í Ölfusdal í þágu útivsitar og nálægðar við náttúruna. Umræður og ákvarðanir um virkjanir í og við náttúrperlur eins og Ölfusdal, og í næsta nágrenni við íbúabyggð, eru því mál sem þarf að vanda sérstaklega vel til og hafa víðtækt samráð við íbúa og ferðaþjónustuaðila.

Hveragerðisbær leggst gegn því að rannsóknarleyfi verði veitt í Ölfusdal fyrr en náið og eðlilegt samráð hefur verið haft við sveitarfélagið og íbúa þess um þessa framkvæmd. Því er beint til umræddra aðila og stjórnvalda að tryggja aðkomu Hveragerðisbæjar að öllum áformum um virkjanaframkvæmdir í Ölfusdal áður en nokkrar ákvarðanir verða teknar um rannsóknarleyfi eða framkvæmdir.


Síðast breytt: 30. nóvember 2023
Getum við bætt efni síðunnar?