Fara í efni

Bókasafnið í Hveragerði og Bókabæirnir austanfjalls á Blómstrandi dögum:

Sumarlestrarsprell fyrir hressa krakka verður á fimmtudaginn kl. 16:30 á bókasafninu. Gunnar Helgason kynnir væntanlega bók og spjallar við krakkana, boðið verður upp á hressingu, farið í ratleik með Harry Potter þema og dregið í sumarlestrarhappdrættinu. Við hlökkum til að sjá sem flesta sumarlestrarkrakka. Foreldrar einnig velkomnir.

Á sýningunni sem prýðir veggi safnsins eru spjöld með viðar- og marmaramálun eftir Helga Grétar Kristinsson, málarameistara. Einnig eru nokkrar myndir frá Hafnarfjarðarkirkju en þar málaði Helgi m.a. kirkjuorgelin í marmaralíki. Þess má geta að Helgi málaði Kotstrandarkirkju fyrir nokkrum árum.

Á föstudaginn opnar bókamarkaður á bókasafninu. Þar má finna marga „gullmola“. Bókamarkaður hefur verið árviss á Blómstrandi dögum frá 2004 og eins og venjulega má finna á honum allskonar bækur á fínu verði.

Héraðsskjalasafn Árnesinga hefur sent okkur fleiri ljósmyndir til greiningar. Gaman væri að fólk liti inn og athugaði hvort það þekkir einhverja á myndunum. Það verður kaffi á könnunni og opið föstudag kl. 13-18:30, laugardag kl. 11-17 og sunnudag kl. 13-17.

Bókabæirnir austanfjalls setja upp Ljóðakassa við bekkinn undir „Hlyninum eina“ á Heiðmörkinni á sunnudeginum kl. 14 en ljóðakassinn verður „vígður“ með því að ljóðskáld úr Hveragerði lesa eigin ljóð. Allir velkomnir til að hlusta og jafnvel að lesa upp fyrir viðstadda. Meiningin er að þeir sem vilja geti stungið ljóði í kassann til aflestrar fyrir þá sem vilja hvíla sig á bekknum og njóta ljóðanna. Bókasafnið mun fylgjast með kassanum og setja í hann nokkrar ljóðabækur.


Síðast breytt: 17. ágúst 2017
Getum við bætt efni síðunnar?