Fara í efni

Almannavarnir - kynningarfundur

Almannavarnir verða til umræðu á íbúafundi sem haldinn verður þriðjudaginn 12. september n.k. kl. 20:00 í Grunnskólanum í Hveragerði.

Dagskrá:

  • Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri, hvað brennur á Hvergerðingum er varðar almanavarnir?

  • Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri, Lögreglan á Suðurlandi, hverjar eru áherslur lögreglunnar?

  • Víðir Reynisson verkefnastjóri almannavarna á Suðurlandi, hvað eru almannavarnir að gera?

  • Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar Íslands, hvað er vátryggt í náttúruhamförum?

  • Kristín Jónsdóttir hópstjóri náttúrvárvöktunar Veðurstofu Íslands, hvernig virkar vöktunarkerfi Veðurstofunnar?

  • Umræður

Það er mikilvægt að íbúar kynni sér málefni almannavarna og hvernig brugðist verður við komi til almannavarnaástands.

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta.

Bæjarstjóri


Síðast breytt: 8. september 2017
Getum við bætt efni síðunnar?