Fara í efni

Almannavarnavika í Hveragerði

Vikan sem nú er að líða hefur verið helguð almannavörnum hér í Hveragerði. Unnið hefur verið að verkefnum tengdum almannavörnum og lykilstarfsmenn sveitarfélagasins hafa tekið virkan þáttí þeirri vinnu. Unnið hefur verið að uppfærslu á leiðbeiningum um viðbrögð við náttúruhamförum sem unnar voru hér í Hveragerði í kjölfar jarðskjálftans 2008 en mikilvægt er að slíkar leiðbeiningar séu ávallt uppfærðar miðað við nýjustu upplýsingar og stöðu sveitarfélagsins.

Það sem af er vikunni hafa lykilstarfsmenn og viðbragðsaðilar í sveitarfélaginu hist á vinnufundum. Forsvarsmenn skólanna hafa einnig fengið fræðslu sem síðan er hægt að nýta til að miðla til barna og unglinga.

Á þriðjudagskvöldið var íbúafundur þar sem almannavarnamál voru kynnt. Til fundarins héldu eftirtaldir erindi en þau má einnig sjá hér fyrir neðan.

  • Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á Suðurlandi kynnti störf lögreglunnar á Suðurlandi.

    Lögreglan á Suðurlandi

  • Víðir Reynisson verkefnastjóri almannavarna á Suðurlandi fór yfir það hvað eru almannavarnir að gera? Almannavarnir á Suðurlandi

  • Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar Íslands kynnti starfsemi Viðlagatryggingar og hvað er vátryggt í náttúruhamförum? Viðlagatrygging

  • Kristín Jónsdóttir hópstjóri náttúrvárvöktunar Veðurstofu Íslands var með áhugavert erindi um vöktunarkerfi Veðurstofunnar. Jarðvaraeftirlit

Í lokin spunnust nokkuð fjörugar umræðum um ýmislegt sem laut að málefnum Hveragerðisbæjar svo sem niðurdælingu affallsvatns við Hellisheiðarvirkjun svo dæmi sé tekið.

Það er mikilvægt að íbúar kynni sér málefni almannavarna og hvernig brugðist verður við komi til almannavarnaástands. Á heimasíðu Almannavarna má finna góða upplýsingar og eins er ávallt gott að fara yfir upplýsingarnar sem eru aftan á dagatali Hjálparsveitar skáta hér í Hveragerði en því er dreift í hvert hús á hverju ári.

Bæjarstjóri.


Síðast breytt: 14. september 2017
Getum við bætt efni síðunnar?