Allir reikningar birtir í íbúagátt
24.01
Frétt
Allir reikningar Hveragerðisbæjar svo sem vegna leikskólagjalda, fasteignagjalda og annarra gjalda birtast nú í íbúagáttinni sem nálgast má hér á vef Hveragerðisbæjar. Greiðsluseðlar birtast þó áfram í heimabanka og áfram þarf að greiða þá í banka.
Álagningarseðlar vegna fasteignagjalda eru ekki sendir í hús heldur má finna þá á island.is í pósthólfinu.
Tilgangur íbúagáttarinnar er að veita Hveragerðisbæ betri rafræna þjónustu. Í gáttinni er til dæmis hægt að sækja um margvíslega þjónustu, senda formleg erindi til bæjaryfirvalda, skoða reikninga og fylgjast með framgangi sinna mála hjá bænum.
Lendi einhver í vandræðum er hægt að hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 483 4000
Síðast breytt: 24. janúar 2023
Getum við bætt efni síðunnar?