Ævintýranámskeið sumarið 2021
Námskeiðshaldari: Hveragerðisbær
Verkefnastjóri: Ingimar Guðmundsson
Aldur: Börn fædd 2010 - 2015
Aldursskipting og áherslur á ævintýranámskeiðum:
Öll námskeið munu einkennast af útiveru, hreyfingu, lýðheilsu, vináttuþjálfun og sjálfstyrkingu. Hver hópur verður með sér áherslur sem samræmast aldri og þroska þátttakenda og hverjar hindranir barnanna gætu orðið á næsta skólaári.
- Börn fædd 2014 og 2015: Stóra skrefið - Undirbúningur fyrir veturinn.
Áhersla á skipulag, vináttu, leik og jákvæð samskipti. Þessir hópar verða mikið saman næsta skólaár og því er lögð áhersla á góðan félagslegan grunn og undirbúning fyrir “stóra skrefið” sem þau taka á næsta skólaári. - Börn fædd 2012 og 2013: Tómstundamenntun og hópefli:
Áhersla á tengingu við náttúruna, hreyfingu og ferðalög innan Hveragerðis og fjölbreytta hópleiki. Áhersla á að styrkja hópinn fyrir veturinn og kynna fyrir þeim mikilvægi frítímans og hvað stendur þeim til boða. - Börn fædd 2010 og 2011: Útinám, náttúra og sjálfstyrking:
Áhersla á tengingu við náttúruna, ígrundun og sjálfstyrkingu. Á námskeiðinu verður einnig kynning á starfsemi Skjáltaskjóls sem er félagsmiðstöð unglinga í Hveragerði og er vetrarstarfið mótað eftir þeirra óskum og þörfum.
Við bjóðum uppá fjölbreytta og skemmtilega dagskrá:
Listgreinar, íþróttaleiki, ratleiki, útieldun, lautaferðir, leiklistaræfingar, gönguferðir, vettvangsferðir, leiki, útinám, ígrundun og fjölbreytt einstaklings- og hópverkefni.
Allir hópar munu á einhverjum tímapunkti eiga samleið og læra samvinnu.
Námskeiðin munu hafa aðsetur í Bungubrekku.
Verðskrá:
Boðið uppá heilt eða hálfs námskeið, annaðhvort fyrir hádegi eða eftir hádegi.
- 15.000 kr. frá kl. 8:00–17:00, með hádegismat.
- 7500 kr. ½ daginn (frá kl. 9:00–12:00, með morgunmat eða 13:00–16:00, með síðdegishressingu).
Fullt fæði er innifalið í námskeiðsgjaldinu þar sem áhersla er lögð á hollt, næringarríkt og fjölbreytt fæði. Hafragrautur í morgunmat, heitur matur í hádegi og síðdegishressing (hrökkbrauð, álegg, grænmeti og ávextir).
Systkinaafsláttur: 2. barn 50%, 3. barn 75%.
Athugið að yngstu börnin (fædd 2015) greiða ekki þátttökugjald á ævintýranámskeiðinu.
Almenn dagskrá:
- 08:00 – 09:00 Bungubrekka - mætum og farið yfir dagskrá dagsins, morgunmatur.
- 09:00 – 12:00 Flakk - hópar leggja af stað í sín verkefni.
- 12:00 – 13:00 Bungubrekka – Hádegismatur.
- 13:00 – 15:30 Flakk – hópar leggja af stað í sín verkefni.
- 15:30 – 17:00 Bungubrekka – lok dags. Ígrundun eftir daginn og frjáls tími.
Tímabil:
- Námskeið 1: 7. - 18. júní (9 dagar) 17. júní er frídagur
- Námskeið 2: 21. júní - 2. júlí (10 dagar)
- Námskeið 3: 3. - 16. júlí (10 dagar)
- Námskeið 4: 19. - 30. júlí (10 dagar)
- Námskeið 5: 3. – 13. ágúst (9 dagar)
Frístundaheimilið Skólasel hefur starfsemi sína aftur 13. ágúst.
Upplýsingar um skráningar eru veittar á bæjarskrifstofunni í síma 483-4000 eða með tölvupósti á mottaka@hveragerdi.is.
Nánari upplýsingar um námskeiðið er hægt að nálgast hjá ingimar@hveragerdi.is.