Fara í efni

Ærslabelgur í Hveragerði

Bæjarstjórn hefur samþykkt að festa kaup á 100 m2 "ærslabelg" sem staðsettur verður á útivistarsvæðinu undir Hamrinum og settur upp á vormánuðum 2018. Jafnframt var samþykkt að landslagsarkitekt verði fengin til að hanna gróflega svæðið með tilliti til fjölbreyttrar útivistar og afþreyingar fyrir alla fjölskylduna.

Kostnaður fellur undir þegar samþykkta fjárveitingu til annarra leikvalla á árinu 2017 en til fróðleiks má geta þess að ærslabelgurinn hefur þegar verið keyptur og bíður hann nú uppsetningar með vorinu.

Bæjarstjóri


Síðast breytt: 21. nóvember 2017
Getum við bætt efni síðunnar?