Aðalskipulag Hveragerðisbæjar 2024-2036 - skipulags- og matslýsing
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti þann 8. febrúar 2024 að kynna skipulagslýsingu endurskoðaðs aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2024-2036 fyrir almenningi og senda til umsagnar viðeigandi umsagnaraðila sem og til Skipulagsstofnunar.
Markmið endurskoðunar aðalskipulags Hveragerðisbæjar er að tryggja sem besta samfellu í þróun svæða innan bæjarmarka, svo að nýting og uppbygging innviða geti átt sér stað í takt við fjölgun íbúa. Ástæður endurskoðunar eru hraðari fjölgun íbúa en gildandi aðalskipulag gerði ráð fyrir, mótun samgöngustefnu samhliða aðalskipulagsgerð ásamt því að veita Breiðumörk sérstaka athygli með rammaskipulagshluta vegna tilfærslu Suðurlandsvegar.
Aðalskipulag tekur mið af annarri stefnumótun bæjarins sem og Landsskipulagsstefnu og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Skipulags- og matslýsing aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2024-2036 liggur frammi á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar að Breiðumörk 20 frá og með 14. febrúar 2024 og er aðgengileg á Skipulagsgátt sem og vef Hveragerðisbæjar - skipulags- og matslýsing.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflega athugasemd á Skipulagsgátt, málsnúmer 162/2924, í síðasta lagi þann 20. mars 2024. Skipulagsgátt
Allar fyrirspurnir skulu berast á netfangið hildur@hveragerdi.is
Skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar