Fara í efni

Aðalfundur Bókabæjanna austanfjalls 2018

Aðalfundur Bókabæjanna austanfjalls 2018 verður haldinn í Listasafni Árnesinga, fimmtudaginn 12. apríl og hefst hann kl. 17:00.

Dagskrá aðalfundar er hefðbundin:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram.
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
  4. Lagabreytingar.
  5. Ákvörðun félagsgjalds.
  6. Kosning stjórnar.
  7. Verkefni framundan.
  8. Önnur mál.

Í fundarhléi verður boðið upp á hressingu.

Í lok fundarins flytur Harpa Rún Kristjánsdóttir erindi sem hún kallar „En þá missir mannskepnan völdin“ og vakti mikla athygli á Hugvísindaþingi fyrir skemmstu.

Allir eru velkomnir á fundinn. Gestir, sem ekki eru nú þegar félagsmenn, eru hvattir til að ganga til liðs við Bókabæina.

Stjórn Bókabæjanna austanfjalls bokaustanfjalls@gmail.com


Síðast breytt: 3. apríl 2018
Getum við bætt efni síðunnar?