Fara í efni

82,2 m.kr. hagnaður af rekstri Hveragerðisbæjar

Eftirfarandi eru bókanir bæjarfulltrúa við síðari umræðu um ársreikning ársins 2017:

Fulltrúar D-listans bókuðu eftirfarandi:

Niðurstaða ársreiknings bæjarsjóðs og stofnana hans fyrir árið 2018 er jákvæð sem nemur 82,2 m.kr.

Fjárhagur bæjarins er í traustum skorðum nú sem fyrri ár en samfelldur hagnaður hefur verið af rekstri samstæðu A og B hluta frá árinu 2012.

Ytri aðstæður hafa verið sveitarfélögum hagfelldar að undanförnu en einnig hefur aðhald og árvekni í rekstrinum reynst nauðsyn til að svo jákvæð niðurstaða næðist.

Á árinu 2017 lauk stærstu framkvæmd kjörtímabilsins, byggingu 6 deilda leikskóla við Þelamörk. Það er ljóst að mikil þörf var á þeirri byggingu en nú getur bæjarfélagið boðið börnum frá 12 mánaða aldri leikskólavistun. Meirihluti D-listans hugsar til framtíðar og er óhræddur við áskoranir eins og framkvæmdir undanfarin ár hafa sýnt. Þetta hefur gert að verkum að mikil ásókn er í búsetu í bæjarfélaginu og ánægja íbúa samkvæmt könnunum með því besta sem gerist á landinu.

Fasteignaverð er hærra en í nágrannasveitarfélögum og fyrirséð að í bæjarfélaginu mun fjölga vel umfram landsmeðaltal á næstu árum. Við aðstæður sem þessar er mikilvægt að fjármálum bæjarins sé stýrt af festu en að jafnframt sé til staðar sýn til framtíðar varðandi uppbyggingu innviða sem nauðsynlegir eru.

Ársreikningur 2017 sýnir sterka afkomu Hveragerðisbæjar bæði sveitarsjóðs og samstæðu(A og B hluta. Samstæðan skilar jákvæðu veltufé frá rekstri 277,2 mkr eða sem nemur ríflega 10% af heildartekjum bæjarins. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) er jákvæð um 337,3 mkr eða sem nemur um 12,3% af heildartekjum samstæðu. Sem hlutfall af heildartekjum bæjarins nema skuldir í árslok 2017 109,7 % sem er 40,3 prósentustigum undir því skuldaþaki sem ný sveitarstjórnarlög hafa fyrirskipað. Rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs er jákvæð um 31,3 mkr.

Langtímaskuldir samstæðu (A og B hluta) að viðbættri leiguskuldinni vegna Sunnumerkur 2 nema 2.212 mkr.. Lífeyrisskuldbinding er 552 mkr. Samtals gerir þetta 2.764 mkr eða rétt ríflega 1 mkr pr íbúa.

Það er ljóst að sveitarfélagið er vel í stakk búið til að standa við skuldbindingar sínar og fjárhagslega fært um frekari fjárfestingar. Þennan árangur ber að þakka markvissu aðhaldi og traustu utanumhaldi fjármuna bæjarbúa undanfarin ár. Fjárfestingar á árinu 2017 námu 522,3 mkr. á móti fjárfestingu ársins 2016 er nam 331,7 mkr.

Helstu fjárfestingar ársins fólust í byggingu nýs leikskóla við Þelamörk(538mkr), innlausn erfðafestu á Friðarstöðum(64 mkr), gatnagerð, vatns- og fráveituframkvæmdum(85 mkr),kaupum á landi í Öxnalæk(15 mkr) og kaupum á Hveramörk 7(21,5 mkr), viðgerðir á Mjólkurbúi (9 mkr) en aðrar fjárfestingar voru smærri á árinu.

Tekin ný langtímalán voru 550 mkr en afborganir langtímalána námu 198,5 mkr.

Stærstu einstöku útgjaldaliðir Hveragerðisbæjar eru fræðslu- og uppeldismál sem taka til sín 47,4% af skatttekjum, félagsþjónustan 10,7% og æskulýðs- og íþróttamál 8,7%.

Það hefur verið sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með góðu og ábyrgðarfullu starfi forstöðumanna bæjarins og starfsmanna sem allir hafa tekið virkan þátt og borið ábyrgð á að fjárhagsáætlun einstakra stofnana standist. Meirihluti D-listans færir þeim öllum bestu þakkir fyrir framlag þeirra til ábyrgs reksturs bæjarins.

Við lok kjörtímabilsins vill meirihlutinn þakka bæði starfsmönnum og bæjarbúum öllum vinsemd og ánægjulegt samstarf. Einnig þökkum við fulltrúum minnihlutans fyrir gott samstarf en fjárhagsáætlanir undanfarinna ára hafa verið unnar í samstarfi allra og hefur samstarf í bæjarstjórn verið traust og ánægjulegt. Fyrir það ber að þakka.

Eyþór H. Ólafsson
Aldís Hafsteinsdóttir
Friðriki Sigurbjörnsson
Berglind Sigurðardóttir.

Fulltrúar minnihlutans bókuðu eftirfarandi:

Bæjarfulltrúar Frjálsra með Framsókn og Samfylkingar og óháðra fagna jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðu bæjarins fyrir árið 2017.

Fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar hefur síðustu ár verið unnin í samstarfi allra flokka sem sæti eiga í bæjarstjórn. Það hefur bætt fjármálastjórn bæjarins.

Góð rekstrarniðurstaða má einnig rekja til þess að tekjur bæjarins voru hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ljóst er að skuldsetning hefur aukist talsvert m.a. vegna byggingar nýs leikskóla. Það gerir bæinn viðkvæmari fyrir ytri skakkaföllum, og því mikilvægt að gæta hófs í frekari lántökum á næstu árum.

Eins og undanfarin ár vekur það athygli hversu stór hluti af tekjum bæjarins er framlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, eða 518 mkr. af 2.624 mkr. heildartekjum sveitarsjóðs. Það nemur um 20% af heildartekjum sveitarsjóðs. Ástæða þessa háa framlags frá Jöfnunarsjóði eru lágar tekjur bæjarins. Með hærri tekjum er hægt að borga skuldir hraðar niður og auka þjónustu við bæjarbúa. Vænlegasta leiðin til að hækka tekjur bæjarfélagsins er að efla atvinnulíf, sem bæjarfulltrúar S- og B-lista hafa ítrekað bent á. Undirrituð þakka fyrir gott samstarf á liðnum árum og vonast til þess að ný bæjarstjórn sem kjörin verður í lok þessa mánaðar muni einnig vinna vel saman að fjármálastjórn bæjarins.

Garðar R. Árnason B-lista
Njörður Sigurðsson S-lista
Vikoría Sif Kristinsdóttir S-lista

Ársreikningurinn var að þessu loknu samþykktur með öllum greiddum atkvæðum og undirritaður.


Síðast breytt: 17. maí 2018
Getum við bætt efni síðunnar?