Fara í efni

500 skátar í Hveragerði

Eftirfarandi upplýsingar eru af heimasíðunni www.skatamal.is

Stærsta skátamót Íslandssögunnar fer fram dagana 25. júlí til 2. ágúst þegar ríflega 5.000 skátar frá 96 löndum taka þá í hinu alþjóðlega skátamóti World Scout Moot. Mótið er fyrir þátttakendur á aldrinum 18- 25 ára og það sem haldið verður hérlendis er það 15. í röðinni.

Stærsta áskorun íslenskra skáta til þessa

Íslenskir skátar eru gestgjafar 15th World Scout Moot nú í sumar. Mótið er haldið á vegum heimssamtaka skáta, World Organization of the Scout Movement (WOSM). World Scout Moot er heimsmót eldri skáta. Þátttakendur er ungt fólk á aldrinum 18 – 25 ára auk sjálfboðaliða 26 ára og eldri. Um er að ræða eitt stærsta einstaka verkefni skátahreyfingarinnar í 100 ára sögu hennar á Íslandi og jafnframt stefnir í stærsta heimsmót eldri skáta sem haldið hefur verið frá því að fyrsta mótið var haldið 1931. Mótið er að öllu jöfnu haldið á fjögurra ára fresti, á mismunandi stöðum um heiminn hverju sinni.

Stærsti hópurinn frá Bretlandi

Mótið verður sótt af yfir 5.000 skátum frá yfir 100 löndum. Um 450 Ástralir, 360 Svisslendingar og 300 Brasilíumenn mæta til leiks, 85 frá Hong Kong og meira að segja munu mæta 15 frá Suður Afríku. Lang stærsti hópurinn kemur frá Bretlandi eða um 650 manns. Um 100 íslenskir skátar taka þátt sem þátttakendur. Yfir 300 íslenskir skátar hafa sinnt undirbúningi og skipulagningu mótsins frá árinu 2013 og vinna að því að gera upplifun þátttakenda ógleymanlega.

Gera heiminn að betri stað

Þema mótsins er Change – Inspired by Iceland. Þemað er hægt að nýta á margvíslegan hátt en það passar vel við það markmið skátanna um að gera heiminn að betri stað. Þátttakendur munu setja sér persónulegar áskoranir áður en komið er til Íslands sem þeir ætla að læra eða gera á mótinu og taka svo með sér heim til að efla sitt samfélag.

20.000 vinnustundir í sjálfboðavinnu

Mótið stendur yfir í níu daga frá 25. júlí – 2. ágúst 2017, en um 650 manns koma erlendis frá til að aðstoða við framkvæmd þess og mæta þá fyrr og fara seinna. Mótið er sett í Laugardalnum. Í framhaldi, og fyrri hluta mótsins dreifast þátttakendur á ellefu miðstöðvar víðsvegar um landið. Miðstöðvarnar eru í Reykjavík, Akureyri, Hafnarfirði, Þingvöllum, Skaftafelli, Heimalandi, Vestmannaeyjum, Selfossi, Akranesi, Hveragerði og í Hólaskjóli. Þar munu þátttakendur taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sem snýst um ævintýri og virkni, menningu og umhverfi. Þeir munu einnig leggja samfélaginu lið með 20.000 vinnustundum í sjálfboðavinnu fyrir nærsamfélög einstakra miðstöðva, slík verkefni eru t.d. göngustígagerð, hreinsun stranda, leikir fyrir börn svo fátt eitt sé nefnt.

Vel búið Úlfljótsvatn fær mótið í fangið

Síðari hluta mótsins sameinast þátttakendur á Úlfljótsvatni, þar sem skátarnir hafa byggt upp starfsemi frá árinu 1941. Mikil uppbygging hefur verið á Úlfljótsvatni í tengslum við mótið en farið hefur verið í framkvæmdir fyrir um 50m kr. Á Úlfljótsvatni verður fjölbreytt dagskrá fyrir þátttakendur. Fyrst verður alþjóðadagurinn þar sem þátttökulöndin kynna sitt heimaland með þjóðlegum mat, dansi. leikjum eða öðrum uppátækjum. Næstu daga taka þátttakendur þátt í dagskrá í 5 mismunandi dagskrárþorpum. Fjögur þeirra eru nefnd eftir landvættum Íslands og bjóða þau upp á mismunandi viðfangsefni sem eru mikilvæg fyrir aldur þátttakenda. Þema þorpanna eru heilsa- og íþróttir, saga, listir og sköpun og svo umhverfið. Í fimmta þorpinu kynnast þátttakendur helstu trúarbrögðum heims í dag, hvað þau eiga sameiginlegt og hvernig fólk af ólíkum trúarbrögðum getur lifað í sátt og samlyndi.


Síðast breytt: 25. júlí 2017
Getum við bætt efni síðunnar?