Fara í efni

Kjörfundur í Hveragerði

Kjörfundur vegna alþingiskosninga, laugardaginn 28.október 2017, hefst kl.9:00 og lýkur kl.22:00 þann dag í Grunnskólanum í Hveragerði. Gengið er inn um aðalinngang vestanmegin.

Sérstök athygli skal vakin á eftirfarandi:

Kjósandi, sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki, getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.

Þá er ekki heimilt að vera með áróður á eða við kjörstað meðan á kjörfundi stendur svo sem barmmerki og/eða merkingar á bifreiðum.

Frá kl.13:00 til kl.17:00 verða tvær kjördeildir opnar.

Í kjördeild 1 kjósi þeir sem hafa heimilisfang frá A-I og í kjördeild 2 kjósi þeir sem hafa heimilisfang frá K-Ö.

Hveragerði október 2017

Kjörstjórnin í Hveragerði


Síðast breytt: 23. október 2017
Getum við bætt efni síðunnar?