Fara í efni

Lífshlaupið 6. feb 2019

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands minnir á að Lífshlaupið 2019 hefst 6. febrúar.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

*vinnustaðakeppni frá 6. - 26. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)

*framhaldsskólakeppni frá 6. – 19. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)

*grunnskólakeppni frá 6. – 19. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)

*einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Eins og ávalt hvetjum við alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum/í skólanum.

Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en fínar leiðbeiningar má finn hér https://lifshlaupid.is/keppnir/ og undir viðeignadi keppni vinstra megin.

Gaman er að geta fylgst með sinni hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu. Börnum 15 ára og yngri er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og 16 ára og eldri a.m.k. 30 mínútur á dag. Einnig er auðvelt að ná í hreyfinguna sína úr Strava og Runkeeper fyrir þá sem það nota.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu

Hrönn Guðmundsdóttir Sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ hronn@isi.is Sími 514-4000. https://lifshlaupid.is/


Síðast breytt: 21. janúar 2019
Getum við bætt efni síðunnar?