Fara í efni

Tilkynning frá Vegagerðinni

Fimmtudag 18.júlí og föstudag 19.júlí er stefnt að því að malbika á Hellisheiði, frá Kambabrún og niður Hveradalabrekku.

Hellisheiði verður lokað í vestur, á milli Hveragerðis og afleggjara að Helllisheiðarvirkjun og verður umferð beint um hjáleið um Þrengslaveg.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 06:00 til kl. 00:00 báða dagana.

Opið verður fyrir umferð í austur.

Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. lokunarplani.

Athugið að í lokunarplani er gert ráð fyrir að lokað sé í báðar áttir en það verður opið fyrir umferð til austurs.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

http://www.vegagerdin.is/

https://twitter.com/Vegagerdin/status/1151450204333400064


Síðast breytt: 17. júlí 2019
Getum við bætt efni síðunnar?