Hveragerðisbær óskar eftir starfsmönnum til að sinna félagslegri heimaþjónustu
Hveragerðisbær óskar eftir starfsmönnum til að sinna félagslegri heimaþjónustu á kvöldin og um helgar. Um er að ræða hlutastarf í vaktavinnu. Umsækjandi þarf að vera eldri en 18 ára.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Að veita þjónustu eftir þjónustusamningi sem gerður hefur verið við þjónustuþega á heimilum þeirra, eins og aðstoð við heimilishald, félagslegur stuðningur, persónuleg umhirða og fl.
Hæfniskröfur
Æskilegt er að umsækjandi hafi félagsliðamenntun og reynslu af heimaþjónustu eða umönnunarstörfum.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Vandvirkni og sjálfstæði í starfi.
Aðstoð inn á heimili
Hveragerðisbær óskar eftir starfsmanni til að aðstoða inná heimili allt að 10 tíma á viku og er vinnutími breytilegur.
Helstu verkefni
Aðstoð með heimilishald og umönnun barna
Hæfniskröfur
Æskilegt er að umsækjandi hafi félagsliðamenntun og reynslu af heimaþjónustu eða umönnunarstörfum
Lipurð í mannlegum samskiptum og sjálfstæður í starfi.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna á Suðurlandi (Foss).
Frekari upplýsingar um starfið veitir Rannveig Reynisdóttir forstöðumaður stuðningsþjónustu í síma 483-4000 og tölvupósti rannveig@hveragerdi.is
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2019. Umsóknum er hægt að skila á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar að Breiðumörk 20, Hveragerði eða í tölvupósti til rannveig@hveragerdi.is