Fara í efni

Malbikun og vinna við vegrið á Hellisheiði miðvikudag 14.ágúst.

Miðvikudag 14.ágúst og er stefnt að því að malbika á Hellisheiði.

Vegi um Hellisheiði verður lokað til austurs og vesturs, á milli Hveragerðis og afleggjara að Helllisheiðarvirkjun og verður allri umferð beint um hjáleið um Þrengslaveg.
Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.04.

Á sama tíma er unnið við að taka niður og setja upp víravegrið á kaflanum.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 07:00 til kl. 00:00.

Á fimmtudag er svo stefnt að áframhaldandi malbikun í Hellisheiði til austurs.

Lokunarplan8.0.04

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.


Síðast breytt: 12. ágúst 2019
Getum við bætt efni síðunnar?