Fara í efni

Aníta Líf íþróttamaður Hveragerðis 2017

Það er menningar-, íþrótta- og frístundanefnd sem velur íþróttamann Hveragerðis en leitað var eftir tilnefningum frá félögum og deildum í Hveragerði og frá sérsamböndum ÍSÍ. Allar tilnefningar sem bárust eru frá aðildarfélögum ÍSÍ. Allir íþróttamennirnir hafa sýnt mikinn metnað til að ná langt í sinni íþróttagrein og eru svo sannarlega góð fyrirmynd fyrir bæinn og yngri íþróttamenn.

Eftirtaldir íþróttamenn voru í kjöri íþróttamanns Hveragerðis 2017:

  • Aníta Líf Aradóttir, lyftingakona
  • Dagný Lísa Davíðsdóttir, körfuknattleikskona
  • Fannar Ingi Steingrímsson, golfari
  • Hekla Björt Birkisdóttir, fimleikakona
  • Kristján Valdimarsson, blakmaður
  • Kristrún Rut Antonsdóttir, knattspyrnukona
  • Ragnar Ágúst Nathanaelsson, körfuknattleiksmaður
  • Úlfar Jón Andrésson, íshokkímaður

Einnig fengu 8 íþróttamenn viðurkenningu fyrir að hafa orðið Íslands- eða bikarmeistari á árinu.


Síðast breytt: 8. janúar 2018
Getum við bætt efni síðunnar?