Hellisheiði lokuð í austur 8.ágúst og lokuð í vesturátt 9.ágúst
Aðfaranótt fimmtudags 8.ágúst er stefnt að malbiksviðgerðum með PenTaki á Hellisheiði niður Kamba í austur átt.
Hellisheiði verður lokað í austur og allri umferð beint um Þrengslaveg.
Aðfaranótt föstudags 9.ágúst er stefnt að sömu viðgerðum upp Kamba í vestur átt.
Hellisheiði verður lokað í vestur og allri umferð beint um Þrengslaveg.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 21:00 til kl. 07:00 báðar næturnar.
Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.05.
Athugið að í lokunarplani er gert ráð fyrir að lokað sé í báðar áttir en það verður opið fyrir umferð í við eigandi átt 8. og 9. ágúst.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Lokunarplan8.0.05.