Fara í efni

Hveragerðisbær – Skipulagsauglýsingar

Tillaga að Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2017-2029. Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar, samþykkti þann 6. júlí 2017 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2017-2029 skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða heildarendurskoðun á Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2005-2017. Í tillögunni er megináhersla lögð á þéttingu byggðar svo nýta megi sem best núverandi innviði bæjarins s.s. samgöngumannvirki, veitukerfi og stofnanir. Helstu leiðarljós eru sjálfbærni, fjölskylduvænt umhverfi, blómabær og efling atvinnutækifæra. Tillagan, sem samanstendur af skipulagsuppdrætti, skipulagsgreinargerð og umhverfisskýrslu, liggur frammi á bæjarskrifstofunum að Sunnumörk 2 og er til sýnis frá og með mánudeginum 10. júlí til fimmtudagsins 31. ágúst 2017 og hjá Skipulagsstofnun Borgartúni 7b í Reykjavík.

Tillaga að nýju deiliskipulagi Edenreits í miðbæ Hveragerðis.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar samþykkti þann 6. júlí sl. að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi Edenreits, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið afmarkast til vesturs af Reykjamörk, til norðurs af Þelamörk, til austurs af Grænumörk og til suðurs af Austurmörk. Deiliskipulagstillagan felur í sér nýja íbúðarbyggð á lóðunum Austurmörk 25 (Edenlóðin) og Reykjamörk 2a. Á öðrum lóðum á svæðinu eru gerðir rúmir byggingarreitir og ákvæði m.a. um fjölda hæða og nýtingarhlutfall lóða. Á svæðinu verður áfram listaskáli að Austurmörk 21, leikhús að Austurmörk 23 og garðyrkjustöð að Þelamörk 52-54. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við tillögu að Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2017-2029 og er auglýst samhliða henni.

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Austurmörk, Sunnumörk og Mánamörk í Hveragerði.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar samþykkti þann 6. júlí sl. að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi við Austurmörk, Sunnumörk og Mánamörk skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingarsvæðið afmarkast til vesturs af Breiðumörk, til norðurs af Austurmörk, til austurs af Grænumörk, sem síðar breytist í Austurmörk og til suðurs af Mána mörk sem liggur samsíða Suðurlandsvegi. Á svæðinu er í gildi deiliskipulag frá árinu 1997 með síðari breytingum. Í tillögunni felast breytingar s.s. á byggingarreitum, nýtingarhlutfalli og byggingarskilmálum. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við tillögu að Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2017-2029 og er auglýst samhliða henni.

Ofangreindar tillögur liggja frammi á bæjarskrifstofunum að Sunnumörk 2 og eru til sýnis frá og með mánudeginum 10. júlí til fimmtudagsins 31. ágúst 2017. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar til föstudagsins 1. september 2017. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal þeim skilað á bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar að Sunnumörk 2 eða á netfangið gfb@hveragerdi.is.

Skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar


Síðast breytt: 6. júlí 2017
Getum við bætt efni síðunnar?