Fara í efni

Nýr framkvæmdastjóri hjá Íþróttafélagi Hamars

Hafþór er fæddur 1987 og er að ljúka B.Sc. námi í íþróttafræðum við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur margþætta reynslu úr félags- og íþróttastarfi, jafnframt því hefur Hafþór einnig sinnt sölu- og markaðsstörfum m.a. fyrir Ölgerðina. Hafþór hóf störf 1. mars síðastliðinn.

Þetta er í fyrsta sinn sem Íþróttafélagið Hamar ræður framkvæmdastjóra og er því um að ræða mjög ánægjuleg tímamót í sögu félagsins. Til stendur að hafa fasta opnunartíma á skrifstofu félagsins, sem er í suðurenda Íþróttahússins í Hveragerði og verða þeir tímar auglýstir síðar. Vonir standa til þess að sterkt starf Íþróttafélagsins Hamars eflist á alla lund með tilkomu framkvæmdastjóra hjá félaginu.


Síðast breytt: 6. mars 2019
Getum við bætt efni síðunnar?