Fara í efni

Þriðja Lýðheilsugangan er miðvikudaginn 18. september.

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands (FÍ).

Göngur verða vítt og breitt um landið nú í september. Göngurnar munu fara fram alla miðvikudaga í septembermánuði kl. 18:00.

Hulda Svandís Hjaltadóttir verður göngustjóri í Hveragerði. Lagt verður af stað frá íþróttahúsinu v/Skólamörk í Hveragerði, miðvikudaginn 18.september, kl. 18:00. Gengið verður upp á og yfir Hamarinn og um skógræktina.

Þetta eru fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

Allar upplýsingar um göngustaði vítt og breitt um landið má nálgast á heimasíðu verkefnisins http://www.fi.is/lydheilsa/

Vonandi reima sem flestir á sig gönguskóna með okkur á miðvikudögum í september, fara út í náttúruna og njóta fallega landsins okkar.

LIFUM OG NJÓTUM!


Síðast breytt: 5. september 2019
Getum við bætt efni síðunnar?