Önnur Lýðheilsugangan er miðvikudaginn 11. september.
Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands (FÍ).
Göngur verða vítt og breitt um landið nú í september. Göngurnar munu fara fram alla miðvikudaga í septembermánuði kl. 18:00.
Hulda Svandís Hjaltadóttir verður göngustjóri í Hveragerði. Lagt verður af stað frá íþróttahúsinu v/Skólamörk í Hveragerði, miðvikudaginn 11.september, kl. 18:00. Gengið verður hringinn inn í Dal, og fram hjá Hamarshöll, skógræktinni og golfvellinum.
Þetta eru fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.
Allar upplýsingar um göngustaði vítt og breitt um landið má nálgast á heimasíðu verkefnisins http://www.fi.is/lydheilsa/
Vonandi reima sem flestir á sig gönguskóna með okkur á miðvikudögum í september, fara út í náttúruna og njóta fallega landsins okkar.
LIFUM OG NJÓTUM!