Fara í efni

Fyrsta Lýðheilsugangan af fjórum í Hveragerði, miðvikudaginn 4. sept

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands (FÍ) verða vítt og breitt um landið nú í september. Göngurnar munu fara fram alla miðvikudaga í septembermánuði kl. 18:00.

Hulda Svandís Hjaltadóttir verður göngustjóri í Hveragerði. Lagt verður af stað frá íþróttahúsinu v/Skólamörk í Hveragerði, miðvikudaginn 4.sept, kl. 18:00. Gengið verður að Ölfusborgum og með Varmá. Tilbrigði tekið við Heilsustíg.

Lifum og njótum
Þetta eru fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

Allar upplýsingar um göngustaði vítt og breitt um landið má nálgast á heimasíðu verkefnisins http://www.fi.is/lydheilsa/


Síðast breytt: 2. september 2019
Getum við bætt efni síðunnar?