Notendaráð velferðarþjónustu
Dagskrá
1.Innleiðing farsældarlaga í Hveragerði
2410132
Starfsmaður notendaráðs f.h. Hveragerðisbæjar, Nína Kjartansdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi, fer með stutta kynningu um hvað farsældarlögin fela í sér.
Notendaráð þakkar Nínu góða kynningu á innleiðingu samþættingu í þjónustu farsældar barna. Notendaráðið er margs vísara um farsældarinnleiðinguna eftir kynninguna.
2.Reglur um lögbundna þjónustu
2411116
Umræður um lögbundna þjónustu sem Hveragerðisbær vinnur eftir í málefnum fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra.
Notendaráð vill leggja til að Hveragerðisbær hugi að lögbundnum þjónustuúrræðum á borð við skammtímadvöl og lengda viðveru barna í Hveragerði, þar sem íbúum hefur fjölgað mikið undanfarin ár.
3.Yfirlit fjölda þjónustunotenda
2411117
Farið yfir fjölda þeirra einstaklinga sem hafa lögheimili í Hveragerði og nýta eftirfarandi þjónustu haustið 2024:
Skammtímadvöl
Sértæk búsetuúrræði á vegum Bergrisans bs.
Félagsleg stuðnings- og stoðþjónustas
Stuðningsfjölskyldur
Akstursþjónusta
Samþætt þjónusta skv. Farsældarlögum
Frístundaþjónusta - lengd viðvera barna í 5.-10. bekk
Skammtímadvöl
Sértæk búsetuúrræði á vegum Bergrisans bs.
Félagsleg stuðnings- og stoðþjónustas
Stuðningsfjölskyldur
Akstursþjónusta
Samþætt þjónusta skv. Farsældarlögum
Frístundaþjónusta - lengd viðvera barna í 5.-10. bekk
Notendaráði þykir umhugsunarvert hvers vegna ekki séu fleiri umsóknir um þjónustu á borð við t.d. skammtímadvöl og lengda viðveru barna. Ráðið veltir því fyrir sér hvort ástæðan sé sú að þjónustan sé ekki til staðar innan bæjarfélagsins.
4.Fundadagatal
2411118
Lagt fundardagatal til útfyllingar dagsetninga fyrir fundi fram að sumri 2025.
Settar voru niður dagsetningar komandi funda notendráðsins. Fundað verður síðasta miðvikudag hvers mánaðar út maí 2025.
Fundi slitið - kl. 19:15.
Getum við bætt efni síðunnar?
Brynja Sif Sigurjónsdóttir kom í hans stað.
Valkyrja Sigrún Sigurðardóttir og Sigríður Anna Hjartardóttir boðuðu einnig forföll. Ekki náðist í varamenn í þeirra stað.
Sigríður Hauksdóttir sat fundinn sem ráðgjafi að beiðni notendaráðsins.