Fara í efni

Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd

9. fundur 10. febrúar 2025 kl. 17:00 - 19:00 Sáttagerði á Hótel Örk
Nefndarmenn
  • Marta Rut Ólafsdóttir formaður
  • Einar Alexander Haraldsson aðalmaður
  • Atli Örn Egilsson aðalmaður
  • Ingibjörg Zoëga Björnsdóttir aðalmaður
  • Sigurður Markússon varamaður
Starfsmenn
  • Sigríður Hjálmarsdóttir Menningar, - atvinnu- og markaðsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Sigríður Hjálmarsdóttir menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi
Dagskrá
Formaður menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar, Marta Rut Ólafsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Fundadagskrá menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar

2501123

Lögð er fram áætlun um fundatíma menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar fram á vor 2025.
Framlögð fundadagskrá fram á vorið 2025 samþykkt.

2.Byggðamerki Hveragerðisbæjar

2409010

Hafin er vinna við uppfærslu á byggðamerki Hveragerðisbæjar til að það uppfylli þá staðla sem gilda um byggðamerki. Hún mun einnig gera tillögu að leturgerð til notkunar með merkinu.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd samþykkir að Hrund Guðmundsdóttir vinni áfram að uppfærslu byggðamerkisins, geri tillögu að leturgerð og útbúi í kjölfarið nýtt bréfsefni, sniðmát að PowerPoint kynningum og fleira. Reiknað er með að uppfærslan verði tilbúin fyrir næsta fund nefndarinnar þann 19. mars.

3.Skilti

2403774

Vinnuhópur hefur unnið að gerð nýs bæjarskiltis við bæjarmörk Hveragerðis að undanförnu og ýmsar hugmyndir komið fram. Grunnhugmyndin gengur út á að hafa skiltið náttúrulegt og blómlegt í anda Hveragerðisbæjar.
Nefndin fagnar framgangi vinnunnar og hlakkar til að sjá næstu tillögur frá vinnuhópnum. Miðað er við að skiltin verði komin upp fyrir 1. júní.

4.Tækifæri í jarðhita

2501109

Eitt af helstu einkennum Hveragerðis eru jarðhiti og nýting hans. Sigurður Markússon (O) kynnti hugmyndir um nýtingu jarðhita til uppbyggingar í Hveragerði.

Ljóst er að ýmsir möguleikar eru til nýtingar á jarðhita í Hveragerði. Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd felur formanni og starfsmanni nefndarinnar að vinna málið áfram í samhengi við atvinnustefnu fyrir neðri hluta Árnessýslu sem nú er í vinnslu. Einnig er mikilvægt að bæjarstjórn sé upplýst um framgang verkefnisins sem fyrst svo hægt sé að taka tillit til þess við gerð aðalskipulagsins sem nú er í vinnslu. Hugmyndirnar ríma vel við vinningstillöguna um skipulag miðbæjarins frá árinu 2008.

5.Tillaga að samstarfi um byggingu reiðhallar að Vorsabæjarvöllum

2411005

Bæjarráð vísaði erindi frá Hestamannafélaginu Ljúfi til menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar til afgreiðslu. Félagið óskar eftir að tilnefndir verði 2-3 aðilar frá Hveragerðisbæ til samtals um möguleika á samstarfi um uppbyggingu reiðhallar fyrir félagsmenn.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd tilnefnir Mörtu Rut (B) og Ingibjörgu (D) til að eiga samtal við hestamannafélagið Ljúf um mögulega fleti á samstarfi.

6.Erindi frá hópi listamanna í Hveragerði

2501090

Hópur listamanna sem starfar í Hveragerði óskar eftir því að Hveragerðisbær leigi 400 fm húsnæði við Austurmörk og framleigi til skapandi einstaklinga sem búa og/eða starfa í Hveragerði.

Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd fagnar því að hugur sé í listamönnum í Hveragerði. Nefndin telur ekki forsendur fyrir því að verða við beiðninni í núverandi mynd en býður hópnum til frekara samtals um mögulegar útfærslur á að styðja við listafólk sem búsett er í Hveragerði.

7.Atvinnustefna neðri hluta Árnessýslu

2409014

Vinna við atvinnustefnu neðri hluta Árnessýslu er vel á veg komin en hún er samstarfsverkefni Hveragerðisbæjar, Árborgar og Flóahrepps. Fulltrúar Hveragerðis í samstarfinu eru menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi og formaður menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar.

Menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi kynnir fyrir nefndinni samantekt á niðurstöðum frá íbúakönnun og íbúafundi sem fram fóru árið 2024 auk þess að upplýsa um næstu skref vinnunnar.
Lagt fram til kynningar og nefndin mun vinna málið áfram á næsta fundi.

8.Bílastæði við Árhólma

2501115

Frá því gjaldtaka hófst við bílastæðin við Árhólma í ágúst 2021 hefur gjaldið, fyrirkomulag innheimtu, upplýsingaskilti og búnaður verið óbreytt. 85-95 þúsund bílar hafa ekið inn á bílastæðið árlega á þessum tíma og er nú tímabært að endurskoða og uppfæra fyrirkomulagið og upplýsingar til gesta.
Nefndin leggur til að gengið verði til viðræðna um rekstur á gjaldheimtunni og að menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi fylgi málinu eftir.

9.Barnamenning

2501126

Atli Örn (B) kynnir tillögu um að Hveragerðisbær setji upp viðburð í tengslum við Barnamenningarhátíð þar sem börn í bænum taki þátt.
Nefndin leggur til að hugmyndin verði þróuð áfram í samráði við forstöðumenn skólastofnana bæjarins.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:00.

Getum við bætt efni síðunnar?