Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd
Dagskrá
Sandra Sigurðardóttir, formaður, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
1.Starfsáætlun Menningar-atvinnu og markaðsnefndar
2311248
Fundadagatal og starfsáætlun menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar lagt fram til samþykktar.
Rætt um starfsáætlun nefndarinnar fyrir 2024. Áætlunin uppfærð og samþykkt.
2.Umsóknir um dvöl í Varmahlíðarhúsinu 2024
2311345
Alls bárust 34 umsóknir um dvöl í listamannahúsinu Varmahlíð fyrir árið 2024. Tillaga að úthlutun lögð fram.
Úthlutun rædd og menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa falið að ganga frá úthlutuninni miðað við tillögur nefndarinnar.
3.Íþróttamaður Hveragerðis 2023
2311250
Alls bárust sex tilnefningar til Íþróttamanns Hveragerðis árið 2023.
Nefndin fór yfir tilnefningarnar og valdi íþróttamann Hveragerðis 2023. Afhending mun fara fram í Listasafni Árnesinga fimmtudaginn 28. desember kl. 16.
Einar Alexander vék af fundi undir þessum lið kl. 18.10.
4.Styrkbeiðni v. Jólastundar í Reykjadalsskála
2311253
Rætt um styrkbeiðni út frá umsókn og kostnaðaráætlun frá tónleikahöldurum.
Nefndin óskar tónleikahöldurum til hamingju með vel heppnaða tónleika og sitt framlag til menningar og lista á aðventunni. Því miður er ekki unnt að verða við styrkbeiðninni að svo stöddu en óskar eftir frekara samtali og samstarfi á nýju ári.
Einar Alexander kom inn á fundinn kl. 18.23.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 18:30.
Getum við bætt efni síðunnar?