Bæjarráð
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
1.Bréf frá dómsmálaráðuneytinu frá 4. október 2024
2410056
Lagt fram bréf frá dómsmálaráðuneyti þar sem boðið er upp á þátttöku í samráðsferli í samráðsgátt vegna draga að frumvarpi til laga um breytingu á 44. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 (fjöldaflótti), mál nr. 199/2024.
Lagt fram til kynningar.
2.Bréf frá innviðaráðuneytinu frá 3. október 2024
2410055
Í bréfinu er fjallað um árlegan alþjóðlegan minningardag um fórnarlömb umferðarslysa sem haldinn verður 17. nóvember 2024.
Lagt fram til kynningar.
3.Bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga frá 1. október 2024
2410101
Í bréfinu er fjallað um ársreikning Hveragerðisbæjar fyrir árið 2023.
Lagt fram til kynningar.
Bæjaryfirvöld leggja ríka áherslu á að Hveragerðisbær uppfyllir öll skilyrði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 um fjármál sveitarfélaga. Það er markmið og stefna Hveragerðisbæjar að treysta enn betur fjárhag sveitarfélagsins á komandi árum. Áætlað er að bærinn verði innan marka þegar bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 um fjármál sveitarfélaga fellur úr gildi.

4.Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélag frá 7. október 2024
2410054
Í bréfinu er kynnt staðgreiðsluáætlun sveitarfélaga fyrir árin 2024 og 2025, útgefin af þróunarsviði Sambandsins.
Lagt fram til kynningar.
5.Bréf frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) frá 16. október 2024
2410102
Í bréfinu er bæjarstjórn Hveragerðisbæjar boðið á stjórnarfund SASS sem halda á miðvikudaginn 30. október 2024 í tilefni af ársþingi SASS sem haldið verður í Hveragerði.
Bæjarráð Hveragerðisbæjar þiggur boð stjórnar SASS og hlakkar til að eiga uppbyggilegar samræður um áherslur og málefni Suðurlands.
6.Bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands frá 9. október 2024
2410075
Í bréfinu er boðað til aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands sem haldinn verður á Hótel Örk í Hveragerði 1. nóvember 2024.
Lagt fram til kynningar.
Hveragerðisbær á 6 fulltrúa á fundinum.
Hveragerðisbær á 6 fulltrúa á fundinum.
7.Bréf frá Orkuveitunni frá 15. október 2024
2406114
Í bréfinu er fjallað um umsókn Orkuveitunnar um leyfi til rannsókna og leitar að jarðhita í Ölfusdal og mögulegan íbúafund í sveitarfélaginu.
Bæjarráð vísar í bókun sína frá fundi 13. júní sl. þar sem skýr krafa kom fram um að Orkuveitan héldi opinn fund með íbúum í ágúst sl. þar sem áform Orkuveitunnar yrðu kynnt. Í bréfi Orkuveitunnar nú kemur fram að ekki standi til að halda fund fyrr en svar Orkustofnunnar við umsókn hennar um leyfi til rannsókna og leitar að jarðhita í Ölfusdal liggur fyrir.
Bæjarráð telur að vel sé hægt og mikilvægt að kynna áform Orkuveitunnar þrátt fyrir að Orkustofnun hafi ekki afgreitt umsóknina.
Um málið í heild sinni minnir bæjarráð á bókanir sem samþykktar voru á fundi bæjarráðs 2. mars 2023, á fundi bæjarstjórnar 29. nóvember 2023 og á fundi bæjarráðs 7. desember 2023.

8.Bréf frá Landsvirkjun frá 15. október 2024
2410096
Í bréfinu er boð á haustfund Landsvirkjunar sem haldinn verður á Selfossi 30. október 2024.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarstjóri mun sækja fundinn fyrir hönd Hveragerðisbæjar.
Bæjarstjóri mun sækja fundinn fyrir hönd Hveragerðisbæjar.
9.Bréf frá Landskjörsstjórn frá 14. október 2024
2410079
Í bréfinu er fjallað um fyrirhugaðar kosningar til Alþingis í nóvember 2024.
Lagt fram til kynningar.
10.Bréf frá Festi hf. frá 16. október 2024
2410116
Í erindinu er óskað eftir framlengingu á lóðarleigusamningi vegna Breiðumarkar 1 í Hveragerði, landnúmer 171130, til að gera félaginu kleift að fara í frekari uppbyggingu á lóð og koma fyrir rafhleðslustöðvum.
Bæjarráð lýsir yfir mikilli ánægju með áform um uppbyggingu á hraðhleðslugarði á lóð Festi hf.(N1) og samþykkir að fela bæjarstjóra að framlengja lóðarleigusamninginn.
11.Bréf frá Gallup frá 24. september 2024
2410098
Lagt fram bréf frá Gallup þar sem Hveragerðisbæ er boðið að taka þátt í þjónustukönnun sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samstarfs við Gallup um þjónustukönnun sveitarfélaga fyrir árið 2024.
12.Bréf frá Fit4Digital frá 12. september 2024
2410058
Í bréfinu er verk- og kostnaðartillaga í ráðgjöf fyrir Hveragerðisbæ er varðar stafræna stöðu, stefnu og aðgerðaráætlun ásamt upplýsingum um fyrirtækið.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.
13.Bréf frá Klúbbnum Strók frá 9. október 2024
2410076
Í bréfinu er sótt um fjárhagslegan stuðning til Klúbbsins Stróks, virknimiðstöðvar á Selfossi.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.
14.Bréf frá Lionsklúbbi Hveragerðis frá 16. október 2024
2410110
Í erindinu er óskað eftir leyfi Hveragerðisbæjar fyrir rafknúnu farartæki á tilteknum göngu- og reiðstígum í bænum og nágrenni hans.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til skipulags- og umhverfisnefndar.
15.Bréf frá Hestamannafélaginu Ljúfi frá 20. október 2024
2410120
Lagt fram bréf frá Hestamannafélaginu Ljúfi þar sem óskað er eftir styrk vegna uppbyggingar og viðhalds reiðvega.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.
16.Notendaráð félagsþjónustu
2409190
Lagt fram minnisblað bæjarritara um notendaráð félagsþjónustu.
Fulltrúi D-listans lagði fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúi D-listans þykir að frekar hefði átt að velja valkost 3. þar sem að notendaráð félagsþjónustu yrði lagt niður, enda er til annar samráðshópur um málefni fatlaðs fólks starfandi á vegum Bergrisans sem Hveragerðisbær á aðild að. Þá verði samþykktum bæjarins breytt þannig að fulltrúi úr hagsmunasamtökum t.d. Öryrkjabandalaginu tilnefni fulltrúa fatlaðs fólks sem hefur rétt til setu á fundum velferðar- og fræðslunefndar með málfrelsi og tillögurétt þegar mál sem varða fatlað fólk er til umræðu.
Friðrik Sigurbjörnsson
Meirihluti bæjarráðs leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á 3. tölul. C-liðar 48. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar nr. 923/2023 með síðari breytingum þar sem nafni notendaráðs félagsþjónustu verði breytt í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks og að þar verði vísað sérstaklega til ákvæðis 2. mgr. 42. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaganna nr. 40/1991.

17.Íbúaþing 60plús
2410060
Lagt fram minnisblað forstöðumanns stuðningsþjónustu og málefna aldraðra er varðar fyrirhugað íbúaþing 60plús í mars 2025.
Bæjarráð fagnar fyrirhuguðu íbúaþingi 60plús og samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.
18.Tímabundin hækkun á yfirdráttarheimild í Arion banka
2410104
Lagt fram minnisblað skrifstofustjóra þar sem óskað er eftir samþykki bæjarráðs fyrir tímabundinni hækkun á yfirdráttarheimild í Arion banka fyrir allt að 80 mkr. til áramóta.
Skrifstofustjóri Hveragerðisbæjar kom inn á fundinn og kynnti málið.
Skrifstofustjóri Hveragerðisbæjar kom inn á fundinn og kynnti málið.
Bæjarráð samþykkir tímabundna hækkun á yfirdráttarheimild í Arion banka fyrir allt að 80 mkr. til næstu áramóta og vísar málinu til samþykktar bæjarstjórnar.
19.Stjórnendamælaborð fyrir kjörna fulltrúa
2410106
Lagt fram minnisblað skrifstofustjóra um stjórnendamælaborð fyrir kjörna fulltrúa.
Skrifstofustjóri Hveragerðisbæjar kom inn á fundinn og kynnti málið.
Skrifstofustjóri Hveragerðisbæjar kom inn á fundinn og kynnti málið.
Lagt fram til kynningar.
20.Staða fjárfestinga 15. október 2024
2410117
Lagt fram minnisblað skrifstofustjóra ásamt fylgigögnum um stöðu fjárfestinga Hveragerðisbæjar 15. október 2024.
Skrifstofustjóri Hveragerðisbæjar kom inn á fundinn og kynnti málið.
Skrifstofustjóri Hveragerðisbæjar kom inn á fundinn og kynnti málið.
Lagt fram til kynningar.
21.Fyrirspurn frá fulltrúa D-lista um fjölda barna í leik- og grunnskóla, mönnun leikskóla og biðlista
2410114
Fulltrúi D-listans óskar eftir upplýsingum um hver fjöldi barna í leikskólum og grunnskóla Hveragerðisbæjar hefur verið í upphafi hvers skólaárs síðustu 10 ár frá 2014 til 2024.
Einnig óskar fulltrúi D-listans eftir upplýsingum um hvort að allar deildir leikskólanna Undralands og Óskalands séu fullmannaðar og hvort að verið sé að fullnýta pláss í öllum deildum.
Þá er óskað eftir upplýsingum um hversu mörg börn séu á biðlista eftir leikskólaplássum í Hveragerði. Óskað er eftir upplýsingum um hvernig aldursdreifing barna á biðlistum sé og hvernig skiptingin á biðlista er milli leikskólanna Óskalands og Undralands og þeirra sem sækja um á báðum leikskólum.

Lagt fram minnisblað deildarstjóra þar sem fram koma svör við spurningum fulltrúa D-listans.
Í því kemur m.a. fram að staðan á mönnun leikskólanna beggja er sú að deildir leikskólanna eru fullsetnar og fullmannaðar samkvæmt svari beggja leikskólastjóra. Nánari upplýsingar er hægt að finna í starfsáætlunum leikskólanna sem voru kynntar á fundi skólanefndar 21. október sl.
Á biðlista eru alls 59 börn. Af þeim eru 30 börn sem ekki eru orðin eins árs. Af þeim 59 börnum á biðlista eru 18 börn sem hafa umsókn í báða leikskólana, 31 í Undraland og 19 í Óskaland.

22.Fyrirspurn frá fulltrúa D-lista um kostnað við rútuakstur
2410115
Fyrirspurn frá fulltrúa D-lista.
Í svari við fyrirspurn bæjarfulltrúa D-listans á síðasta bæjarstjórnarfundi kom fram að kostnaður við rútuakstur frá því að akstri var breytt í september 2023 hafi verið kr. 21.158.000,-. Á fundinum var óskað eftir kostnaði frá júní 2022 við nokkra liði, þar á meðal við rútuakstur. Því er óskað eftir upplýsingum um hver kostnaður við rútuakstur vegna aksturs fyrir Íþróttafélagið Hamar hafi verið á tímabilinu júní 2022 til september 2023.

Á árinu 2022 var í gildi samningur um rútuakstur vegna íþrótta sem hljóðaði upp á kr. 750.000.- á mánuði og gilti sá samningur þar til nýr var gerður í september 2023. Auk þess var greitt fyrir aukaakstur á Selfoss.
Alls var því kostnaður við rútuakstur frá júní 2022 til september 2023 kr. 7.692.000,-
Alls var því kostnaður við rútuakstur frá júní 2022 til september 2023 kr. 7.692.000,-
23.Verkfundargerð - Hlíðarhagi frá 18. september 2024
2410118
Fundargerðin er staðfest.
24.Verkfundargerð - Reykjadalur frá 26. september 2024
2410119
Fundargerðin er staðfest.
25.Verkfundargerð - Hrauntunga frá 2. október 2024
2410113
Fundargerðin er staðfest.
26.Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27. september 2024
2410052
Lagt fram til kynningar.
27.Fundargerð stjórnar Bergrisans frá 20. september 2024
2410051
Lagt fram til kynningar.
28.Fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 27. september 2024
2410053
Lagt fram til kynningar.
29.Fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 9. október 2024
2410074
Lagt fram til kynningar.
30.Fundargerð framkvæmdaráðs Almannavarna Árnessýslu frá 8. október 2024
2410081
Lagt fram til kynningar.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 09:16.
Getum við bætt efni síðunnar?