Myndlistarsýning Kára Sigurðssonar - Fyrri sýning
Kári Sigurðsson
Opnar tvær myndlistarsýningar í BÓKASAFNINU Í HVERAGERÐI
Á fyrri sýningunni sem er vísir að yfirlitssýningu verða 60 verk allt frá því að ég var 10 - 12 ára og fram að síðustu aldamótum, 15 verk eru í einkaeign. Ég verð viðstaddur opnunina og e.t.v daginn eftir, gaman væri að hitta sem flesta eiga notalega stund við spjall og njóta veitinga. Það verður þess virði.
Á seinni sýningunni verða nýrri verk frá aldamótum, mörg ekki verið á sýningu áður og nokkur eldri verk. Þetta verða ekki eins sýningar og vonandi njótið þið sýninganna.
Sú sýning opnar 11. október, kl. 15:00 og lýkur 30. október.
Sýningarnar eru opnar á opnunartíma Bókasafnsins.
Ég er fæddur 1947 í Vopnafirði og ólst þar upp við leik og störf og mikið frelsi. Ég kynntist eiginkonu minni Brynju Pálmadóttur í Laugaskóla og árið 1965 fluttum við til Húsavíkur, þar eignuðums við og ólum upp börnin okkar þau heita, Rut f. 1965, Gríma Eik f. 1966 og Röðull Reyr f. 1978. Árið 1999 fluttum við í Garðabæ og þaðan í Hveragerði 2016 eftir starfslok og höfum búið hér síðan.