Leshringur
Leshringur bókasafnsins er haldinn síðasta fimmtudag í mánuði kl. 17-18. Þar sem síðasta fimmtudag aprílmánaðar ber upp á sumardaginn fyrsta verður leshringurinn að þessu sinni færður til 8. maí.
Fimmtudaginn 8. maí verður fjallað um skáldsöguna Nýtt land utan við gluggann minn eftir Theodor Kallifatides.
Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Eintök af bókinni má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins.
Um bókina:
Theodor Kallifatides yfirgaf Grikkland árið 1964 og fluttist til Svíþjóðar. Hann var 26 ára gamall og heillaðist af nýju landi og tungumáli sem hann náði fljótt undraverðum tökum á. Aðeins fáum árum síðar gaf hann út sína fyrstu bók og er nú í hópi þekktustu rithöfunda Svía.
Í þessari einstöku bók fjallar hann um uppruna sinn og stöðu eftir áratuga búsetu í nýja landinu. Á hrífandi og persónulegan hátt fléttar hann saman hugleiðingum um tungumál og tilvist, minningar, ást og eigin ímynd, ásamt þeim möguleikum og áskorunum sem framandi menningarheimur felur í sér.
„Ég hef ekki orðið sænskur, jafnvel þótt ég sé ekki lengur sá Grikki sem ég hélt að ég væri. Ég er ekki einu sinni hundrað prósent útlendingur.“
Hallur Páll Jónsson íslenskaði