Fara í efni

Leshringur

Bókasafnið í Hveragerði 27. mars | 17:00-18:00

Leshringur bókasafnsins er haldinn síðasta fimmtudag í mánuði kl. 17-18.

Fimmtudaginn 27. mars verður fjallað um skáldsöguna Litir í myrkrinu eftir Ólöfu Dóru Bartels Jónsdóttur.

Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Eintök af bókinni má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins.

Um bókina:

Áratugum saman hefur Þórunn dvalið á Kleppi vegnasálarmeins sem gróf hægt en örugglega undan tilveru hennar og lífsvilja. Umhverfið er hávaðasamt og krefjandi, herbergisfélagar óútreiknanlegir og einangrunin mikil. Dóttir Þórunnar stingur upp á að hún stytti sér stundir með því að líta yfir farinn veg og hekli minningar sínar í teppi. Með sex mismunandi litum heklar hún eitt stykki fyrir hvert ár, og rifjar upp liðna tíma. Að endingu verða sum stykkin björt og fögur, tákn um ást, barnsfæðingar og góð búskaparár. Önnur verða grá og svört, tákn um sorgir, búskaparraunir og barnadauða. Litir í myrkrinu er fyrsta skáldsaga Ólafar Dóru, sem byggir söguna að hluta til á ævi formóður sinnar.

Getum við bætt efni síðunnar?