Fara í efni

Úthlutun á listamannahúsinu Varmahlíð

Myndlistarmenn Rithöfundar Tónlistarmenn

Úthlutun dvalartímabila mun fara fram frá janúar n.k. til og með desember 2019, mánuð í senn.

Menningar- íþrótta- og frístundanefnd Hveragerðisbæjar auglýsir eftir umsóknum um dvöl í listamannahúsinu Varmahlíð í Hveragerði. Íbúðarhúsið er búið öllum húsgögnum og eldunartækjum. Gestalistamenn fá endurgjaldslaus afnot af húsinu en gert er ráð fyrir að þeir kynni sína listgrein í samfélaginu.

Óskað er eftir skriflegum umsóknum, sem sendist til menningar- og frístundafulltrúa Hveragerðisbæjar, Breiðumörk 20, 810 Hveragerði eða rafrænt til jmh@hveragerdi.is. Í umsókn þarf að koma fram æskilegt dvalartímabil og að hverju listamaðurinn hyggst vinna meðan á dvölinni stendur.

Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Hveragerðisbæjar Umsóknarfrestur er til 30. nóvember n.k. Nánari upplýsingar hjá menningar- og frístundafulltrúa í síma 483 4000.


Síðast breytt: 31. október 2018
Getum við bætt efni síðunnar?