Útboð - Hveragerði - Gervigrasvöllur, gervigras
19.02
Frétt
Hveragerði – Gervigrasvöllur – Gervigras
Fasteignafélag Hveragerðis ehf. óskar eftir tilboðum í verkið Hveragerði – Gervigrasvöllur, Gervigras.
Útboðsverkið felst í útvegun og fullnaðarfrágangi gervigrass ásamt fjaðurlagi (in-situ) vegna nýs vallar við Vorsbæjarvöll í Hveragerði. Gervigrasið skal vera af bestu fáanlegum gæðum og uppfylla FIFA Quality staðal Alþjóðaknattspyrnusambandsins.
Helstu þættir verksins eru::
- Gervigrasyfirborð alls um 8.362m2
- Keppnisvöllur 68x105m
- Heildarstærð 74x113m
Skiladagar verksins eru eftirfarandi:
- Verklok keppnisvallar – 1. júlí 2025
Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með þriðjudeginum 18. febrúar 2025 kl.14:00.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en föstudaginn 7. mars kl. 14:00
Síðast breytt: 19. febrúar 2025
Getum við bætt efni síðunnar?