Fara í efni

Þetta líður hjá! Listaverk unnið á staðnum


Elísabet Jökulsdóttir, listakona, hafði samband við forsvarsmenn Hveragerðisbæjar fyrir nokkru og kynnti hugmynd að listaverki sem ávarpað gæti kvíða, einsemd og vonleysi sem því miður eru tilfinningar sem bærast of víða.

Í fáum orðum felst listaverkið í því að stærðar steini eða bjargi verður komið fyrir við bakka Varmár þar sem áin rennur flesta daga lygn og falleg. Matthías mun síðan á nokkrum dögum höggva og móta steininn sem stól þar sem allir geta komið og setið, notið kyrrðar og fallegs útsýnis og velt fyrir sér áhyggjum eða gleði daglegs lífs.

Skilti yrði komið upp til hliðar þar sem segir „Þetta líður hjá“ með vísun til þess að líkt og áin sem lygn líður hjá þá munu vandamál viðkomandi sem gætu í augnablikinu virst óyfirstíganleg líða hjá !

Elísabet hefur fengið til liðs við sig myndhöggvarann Matthías Rúnar Sigurðsson og hafa þau í samvinnu við Hveragerðisbæ, fundið stóran og hentugan stein sem Matthías mun síðan höggva til sem „stól“ á árbakkanum. Ennfremur er gert ráð fyrir að umhverfisdeildin muni í framhaldinu planta „skynjunargarði“ í nánd við listaverkið þar sem njóta má lita, ilms, hljóða og áferðar mismunandi trjáa og runna.

Unnið er að því að flytja bjargið á árbakkann en verkinu hefur verið fundinn staður á bakka Varmár neðan við Heilsustofnun NLFÍ. Þar er afskaplega fallegt umhverfi, kyrrð og friður en göngustígur verður lagður að verkinu.

Matthías Rúnar mun höggva til steininn á næstu tveimur vikum en stefnt er að því að afhjúpun verksins geti átt sér stað á sýningunni Blóm í bæ helgina 13. - 17. júní næstkomandi.

Myndirnar eru teknar í vettvangsferð sem farin var til að leita að steini og góðri staðsetningu fyrir verkið.


Síðast breytt: 28. maí 2019
Getum við bætt efni síðunnar?