Fara í efni

Laus störf á leikskólanum Óskalandi

Staða deildarstjóra er laus við leikskólann Óskaland frá 23.júlí n.k.

Einnig eru lausar stöður leikskólakennara á allar deildir frá 23.júlí n.k. Leikskólinn er 4ra deilda skóli fyrir börn á aldrinum 16 mánaða til 5 ára.

Leikskólinn starfar í anda Reggio Emilia. Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum einstkaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum.

Hæfniskröfur:

Leikskólakennaramenntun
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Gott vald á íslenskri tungu
Hreint sakavottorð

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og eða reynslu kemur vel til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður!

Umsóknarfrestur er til 10.mars n.k.

Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar, Breiðumörk 20, 810 Hveragerði.

Umsóknareyðublöð má finna á vef Hveragerðisbæjar: hér

Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir skólastjóri og Guðlaug Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is

Starfið hentar jafnt konum sem körlum.

Laun samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.


Síðast breytt: 23. febrúar 2018
Getum við bætt efni síðunnar?