Skrifstofu Hveragerðisbæjar vantar aðalbókara
01.04
Frétt
Laust er til umsóknar 75% starf aðalbókara á skrifstofu Hveragerðisbæjar.
Aðalbókari hefur yfirumsjón með bókhaldi sveitarfélagsins og veitir ráðgjöf/leiðbeiningar til stjórnenda og starfsmanna er varðar málefni því tengdu. Sér um afstemmingar og uppgjör virðisaukaskatts.
Menntun og hæfniskröfur:
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
- Frumkvæði í starfi, hæfni til samskipta og góð þjónustulund.
- Góð almenn tölvukunnátta (Word, Excel).
- Þekking á bókhaldskerfum, kostur ef þekking er á Nav bókhaldskerfi.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og stundvísi.
Um er að ræða framtíðarstarf í góðum og samheldum hópi á bæjarskrifstofum í Hveragerði.
Sótt er um starfið á íbúagátt bæjarins með almennri starfsumsókn.
Sótt skal um starfið fyrir 22. apríl n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í síma 483 4000 milli kl. 10:00-12:00 alla virka daga eða með tölvupósti á hk@hveragerdi.is
Síðast breytt: 2. apríl 2025
Getum við bætt efni síðunnar?