Sambýlið Birkimörk 21-27 - Verklok
29.10
Frétt
Nú er lokið utanhússfrágangi á sambýlinu Birkimörk 21-27 en þær framkvæmdir hafa staðið yfir frá því í sumarbyrjun. Verkið fólst í að álklæðning var sett á húsið og var það viðamikið verk. Unnið var eftir forskrift hönnuða hússins sem eru PK arkitektar og framkvæmt af HH-Hús ehf. Framkvæmdin tókst vel og vill Hveragerðisbær þakka þeim sem komu að verkinu kærlega fyrir góða samvinnu og vel heppnaða framkvæmd.
Síðast breytt: 29. október 2024
Getum við bætt efni síðunnar?