Fara í efni

Malbikun og vinna við vegrið á Hellisheiði fimmtudag 15.ágúst

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir: Fimmtudag 15.ágúst og er stefnt að áframhaldandi malbikun á Hellisheiði. Vegi um Hellisheiði verður lokað kl. 07:00 til austurs og kl. 09:00 til vesturs, á milli Hveragerðis og afleggjara að Helllisheiðarvirkjun og verður allri umferð beint um hjáleið um Þrengslaveg. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.04.

Á sama tíma er unnið við að taka niður og setja upp víravegrið á kaflanum.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 07:00 til kl. 00:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.


Síðast breytt: 14. ágúst 2019
Getum við bætt efni síðunnar?