Fara í efni

Malbikun mánudaginn 13. ágúst

Mánudaginn 13. ágúst er stefnt á að malbika báðar akreinar upp Hveradalabrekku(austur), um 2 km á milli vegamóta við Hellisheiðravirkjun og Skíðaskála. Akreinunum verður lokað á meðan og umferð beint um Þrengslaveg. Viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur skv. viðlögðu lokunarplani.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 7:00 til kl. 00:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.


Síðast breytt: 13. ágúst 2018
Getum við bætt efni síðunnar?